Maríu-fréttir
Myndir
26.11.2006 10:51:00 / maría-beib

I´m back!!

www.myspace.com/mariahaf

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 14:04:32 / maría-beib

Tetta kallar á færslu

Jæja, tá eru strákarnir mínir ad narta í tröskuld alheimsfrægdar (t.e. á Íslandi). teir komu fram í tætti Jóns Ólafssonar sídasta laugardagskvöld og spiludu lag eftir Spilverk tjódanna sem teir settu í nyjan búning a´la Múgsefjun. Algjör snilld og get ég ekki annad sagt en ad ég er ad rifna úr stollti yfir teim!! Endilega kíkid á táttinn ef tid erud ekki búin ad sjá hann   http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?date-from=2006-10-07                   teir koma fram í lok táttarins :) Yfir í sömu sálma en á örlítid ólíkum nótum... tannig er mál med vexti ad á sídunni teirra http://www.myspace.com/mugsefjun er nú ad finna lagid Lauslát, mjög skemmtilegt lag sem mig grunar tó ad sé um eina af mínum allra kærustu vinkonum ... og tad sem meira er, mig grunar nebbla ad ég sé ein af "diskódruslunum" sem adalpersóna textans hlustar á ... Hummm... er tetta slæmt eda á ég bara ad vera stollt af tví ad minnst sé óbeint á mig í lagi hljómsveitar sem er á barmi heimsfrægdar ... eda er ég kannski bara ruglud ad halda í alvöru ad ég sé svo merkileg ad minnst sé á mig (tótt óbeint sé) í lagi ... pælingar-pælingar ...  Nidurstada: Finnst tetta mjög fyndid og skemmtilegt lag og ef tetta er tilvitnun til mín tá ætla ég bara ad vera stollt af tví... en finnst samt eitt slæmt og tad er ad tessi kærasta vinkona mín er bara svo engan veginn lauslát!! En hún veit tad og líka langflestir adrir tannig ad tetta heldur bara áfram ad vera fyndid ... Svo getur líka bara vel verid ad tetta lag sé bara almennt samid um allar stelpur og ?á eru allar stelpur lauslátar og diskódruslur... tví tad er vitad mál ad lauslátar stelpur hlusta sko bara á diskódrusluvinkonur sínar.  Svo vil ég líka endilega hvetja fólk til ad hlusta á hid stórfenglega lag Álfar sem er einnig ad finna á sídunni teirra. Flott lag sem hún Hrund vinkona mín syngur yndisfagurri röddu bakraddir í :) Ég ætla bara ad enda tetta á almennilegri auglysingu tví strákarnir eru ad spila á tónleikum bædi á fim. kvöld (veit ekki alveg hvar) og á Beer Fest á Gauknum á fös.kvöldi. Allir a? kíkja... ég verd tar med nyja dökk-dökk-dökk brúna hárid mitt!!  Bæjó, María P.s. búin ad lenda í svaka veseni med ad fá tetta helv.... blogg birt og nenni tessu veseni ekki lengur. Ég ætla tví ad lysa tessa bloggsidu dauda og hvíli hún í fridi!!

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 19:36:38 / maría-beib

Ég sakna...

... Heimis!!
... Kidda!!
... Evu!!
... fjölskyldunnar minnar!!
... vina minna f. sunnan!!
... þess að vera ung og áhyggjulaus!!
... þess að eiga pening!!
... góða veðursins!!



Er komin norður, rembast við að finna heimildir fyrir ritgerðina mína!! Vitiði um einhverjar góðar leitarsíður í að finna greinar um ljósmyndun og grafíska hönnun?? Endilega látið mig vita!!
Kem líklegast ekkert suður fyrr en bara á ammælinu mínu! BLÖNK! Ekki gaman, ónei.

Afmælið hans Kidda var FRÁBÆRT!! ójá! Fín, full, asnaleg og allt!! Kiddi bara sætastur!! Partý ársins!!

Bæjó

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 17:44:00 / maría-beib

Komin heim enn á ný...

eeennnn....er á leið aftur út á þriðjudaginn!! Kærastinn í Köben... og ýmis málefni sem þarf að sinna ;).

Orlando var frábær! Allt skemmtilegt nema hægt afgreiðslufólk í verslunum, auglýsingar í sjónvörpum og fáránlega "ritskoðaðar" myndir!! Var að horfa á species 2 eitt kvöldið og það er blurrað yfir nakin brjóst, sett inn önnur orð í stað fuck og fleiri orða en það er allt í lagi að sýna ógeðslega geimveru rífa sig út úr maganum á konu með blóði og öskrum og öllu!!! Og það sem meira er, ég var að horfa á There´s something about Mary í flugvélinni á leiðinni heim og ALLT atriðið þar sem gaurinn er að runka sér fyrir deitið var klippt út og á meðan settur texti sem á stóð eitthvað um velsæmisbull!!!!VOT ÐE FOKK! Á þetta að vera eitthvað grín??

En ég fór að sjálfsögðu í Universal studios þar sem við frændsystkynin hlupum á milli tækja í rigningunni sem skellti á. Þar voru sko skemmtilegir rússíbanar og tæki og ég verð bara að viðurkenna það að ég var nú smá hrædd við Jaws!

Svo gekk ég í barndóm í Disneyworld og var svo himinlifandi þegar ég sá Öskubusku í skrúðgöngunni að halda mætti að ég stæði fyrir framan Brad Pitt! Já þar voru líka allmörg skemmtileg tæki að fara í og margar skemmtilegar persónur að sjá. Sá dagur var í heild alveg frábær því veðrið hélst gott allan daginn!

Dagurinn á ströndinni var líka mjög fínn. Sól allan tímann og geggjað að leika sér í sjónum ogöldunum. Eva og Hjalti byggðu Perluna úr sandi og allir brunnu nema Helga frænka, amma og afi sem voru undir sólhlífum.

Að sjálfsögðu var verslað, verslað, verslað, verslað og já... verslað!!! Tvær búðir:Urban outfitters og Forever 21!! GEGGJAÐAR!! Margir i-podar keyptir og fleira þeim tengt. En ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei verið eins eigingjörn í verslunarleiðöngrum... fyrir mig eða Heimi.... hummmm... kaupi fyrir mig!!! Sjitt, ég gjörsamlega tímdi ekki að kaupa ekki á mig! ÞETTA VAR SVO ÓDÝRT!!! Þannig að ég eyddi gjörsamlega öllum mínum pening í MIG og á ég ekki krónu núna!!Nebb, ekki einusinni fyrir inneign, þannig að ef þið viljið heyra í mér áður en ég fer á þriðjudaginn þá vinsamlegast hringið því ég vil heyra í ykkur ;).

Húsin sem við vorum í voru frábær, sundlaug úti í garði og allt tip top. Margir morgnarnir fóru í það að flatmaga úti við sundlaug og stikna! En svo var nú bara oftast rigning seinni partinn þannig að ekki er ég nú mjög brún.

En nóg um Orlando í bili. Ég er semsagt að fara til Köben aftur og þar sem Heimir er svona næstum heimilislaus um þessar mundir þá vantar okkur ódýra gistingu helgina 8. og 9. sept. Eitthvað notelegt lítið hótel eða herbergi væri fínt, bara að það sé ekki dýrt!! Ef einhver veit um eitthvað í  þessum dúr í Kóngsins Köben endilega látið mig vita :).

Bless í bili, Marían


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 12:56:05 / maría-beib

Smá færsla

ÉG:

....Er að koma heim á miðvikud. kvöld.
....Fer strax út aftur á föstudag til Orlando.
....Var að bóka flug aftur til köben þan 5. sept. í afmælið hans Kidda... fékk það á tilboði en náði ekki tilboði til baka og ætla að bíða aðeins og sjá hvort það lækki ekki aðeins aftur... semsagt: er að fara til Köben en ekki til baka í augnablikinu ;)
....Borðaði kengúru í gær, það var æði!
....Vildi að ég hefði komist í afmælið hennar Jójó á síðasta fös. Frétti að það hefði verið ÆÐI!
....Hlakka til að sjá allar vinkonur mínar heima á klakanum á fimtudaginn :)
....Á eftir að sakna strákanna minna: Heimis, Kidda, Þóris og Helga hérna úti í vetur :(
....Er búin að eiga æðislegt sumar hérna úti og hlakka til að eiga frábæran vetur heima (eins gott að það staðist!)

Kveðja, Marían

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 09:30:57 / maría-beib

Loksins!

Loksins rignir hér í Köben!! Veðrið er búið að vera svo svakalega gott, brjálaður hiti og sól og gjörsamlega engin rigning í allt sumar (nema þegar Eva kom). Allt gras er orðið gult á litinn og hart eins og strá og fólk er varað við að nota of mikið vatn!! En nú er rigningin komin, á að vísu bara að rigna í dag, en ég vona að það svali mesta þorstanum hjá grasinu svo það verði þægilegt að liggja á því aftur ;).
Við skötuhjúin skelltum okkur til Malmö síðustu helgi, vorum komin um hádegi og fórum heim um kl. hálf þrjú um nóttina. Þetta var alveg yndisleg ferð, Malmö er svakalega falleg og hugguleg og minnti bara svoldið á Rvk að því leyti að hægt er að finna allt á sama stað. Ég verslaði smá, gallabuxur og hlírabol en hann Heimir minn virðist bara hvergi geta verslað neitt... eitthvað í sambandi við að hann þarfnast einskis.... skil ekki alveg hvað það þýðir...
Er orðin svoldið þreytt á vinnunni, erfitt að vakna alltaf kl. 4.30 og vinna eins og brjálæðingur í 6 1/2 tíma, sérstaklega þegar mar vinnur með fólki sem vinnur á hraða skjaldbökunnar!!! Úff! En nú styttist í Orlando og get ég varla beðið!! Kem heim 16. ágúst um kvöldið og svo verður haldið í fjölskylduferðina miklu þann 18. Hlakka geggjað til þar sem þetta verður stórfjölskyldan, foreldrar pabba, systkyni og börn, eða allt í allt 19 manns! Langar svo til að taka kallinn minn með, er enn að reyna að sannfæra hann um að koma... kannski tekst það ef ég dett inn á eitthvað svaka ódýrt flug fyrir hann frá Köben...
Jæja, ég vil bara óska öllum til hamingju með sólina sem virðist ætla að skína eitthvað þessa dagana á klakanum, Strákarnir mínir, Kiddi, Kenneth, Þórir og Jakob fá þá einhverja smá sælu þarna heima og Eva örlitla von um að ná í smá lit fyrir Orlando þó hún eigi að sjálfsögðu ekki eftir að ná mér ;).
Sjáumst, Marían

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 19:09:58 / maría-beib

.....

Hæhæ, er engan veginn að tíma því að hanga inni í tölvunni í þessu svaka góða veðri!! Þessir dagarnir fara bara í það að bakast í sólinni og hafa það gott ;). Hróarskelda var frábær!! Geggjað veður, góðar hljómsveitir, síst á laugardagskvöldinu, og síðast en ekki síst frábær félagsskapur. Við Eva versluðum eins og brjálæðingar þessa 3 daga hennar í Köben og á ég nú fullt af nýju og sætu dóti. Ég og strákarnir mínir fórum svo á Hjálmar tónleika í Stínu í gærkvöldi og var það alveg frábært þrátt fyrir kæfandi hitann inni á staðnum. Ég held að svona 90% fólks á tónleikunum hafi verið Íslendingar!
Jæja, læt þetta duga í bili, smjörþefurinn af því sem ég hef verið að gera.... bæjó!

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 19:25:40 / maría-beib

Sól, sól, skín á mig!!!

Já það gerir hún sko þessa dagana hér úti! Aldeilis frábært! Ég fer út á morgnana í pilsi og bol klukkan 5 og þarf ekki að fara í peysu fyrr en á kvöldin! Það er svo heitt að þetta fer að minna á Spán... og ég er búin að finna út besta hjólabúning EVER! PILS=GEGGJAÐ ;).
Á morgun er frídagurinn minn og þá þarf ég að fara að redda skattkortinu og kennitölunni... hummm... vonandi reddast það... en svona til að gera daginn aðeins skemmtilegri hef ég ákveðið að kaupa mér fallegar leggings sokkabuxur í HogM og fallegan sumarkjól í lítilli sætri búð sem selur líka ÆÐISLEGAR töskur! Lífið ekkert nema ljúf í Kóngsins Köben og hef ég komist að því að íslendingahátíðin 17. júní verður á ströndinni (sem ég var að hygge mig á sunnudaginn) VÍÍÍ!
Er komin með frí á Roskilde og hlakka mikið til!
Ég er búin að vera að vinna á Alberto K. sem er svaka fansí veitingastaður á 20. hæðinni (efstu) á hótelinu þar sem V.I.P liðið borðar... þá erum við að tala um fólk sem borgar allt upp í 24 þús. danskar fyrir nóttina! Stórglæsilegt útsýni á þeim stað get ég sagt ykkur!!
Í gær var ég svo að hjálpa til við að fylla á minibarina á herbergjunum... það var víst eitthvað um veikindi í þeirri deildinni og þar sem ég var búin á Royal kl.12 og átti hvort er er að mæta á staffa-fund kl.15 þá var það nú bara í stakasta lagi. Við þetta tækifæri kíkti ég að sjáfsögðu í upprunalegu Arne Jakobsen svítuna (nr. 606) og er hún svaka flott! Það var nú alveg ágætt að fá að prufa eitthvað annað á hótelinu en ég er nú samt sem áður fegin að vera á Royal, það er bara mjög fínt. Ég fór um daginn með rúmservis til einhvers vip gaursins á hótelinu, veit að vísu ekkert hver þetta var annað en Þórir sem fór um daginn til Colin Powells, en gaurinn var að sjálfsögðu með personal assistant sem opnaði fyrir mér og lét mig hafa tips á meðan mr.vip sat á rúminu í náttfötunum og brosti breytt og bað mig um að skella bara bakkanum á rúmið fyrir framan sig!! Já, sumir hafa það gott ;).

Hef ekkert meira að segja í bili annað en það að lítið er um netráf á mér þessa dagana þar sem ég er alltaf að njóta góða veðursins, oftast í Kongens Have, og biðst ég velvirðingar á því en ég býst ekki við því að það lagist í bráðina ;).
Túrúlls munið að það er 0045 á undan númerinu mínu og Berglind ef þú lest þetta þá verðuru að hringja þegar þú kemur!

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 16:53:23 / maría-beib

Símanúmer

Halló! Nú er ég komin með danskt símanúmer : 26551466, endilega bjallið í mig svo ég fái ykkar númer í símann minn ;).


Var að vinna fyrsta daginn minn í dag. Leist bara vel á þetta, tíminn líður hratt, skemmtilegt fólk og svona. Ég er samt alveg geggjað þreytt í fótunum, enda búin að vera standandi meira og minna í 9 og 1/2 tíma í lánsskóm sem voru númeri of stórir! En það er einn stór plús við vinnuna... FULLT AF GÓÐUM MAT! En jamms, ég vaknaði semsagt klukkan HÁLF FIMM í morgun og hjólaði í vinnuna, vann eins og meiníak með örlítilli pásu og rölti svo um bæinn með Heimi og hjólinu að leita mér að vinnuskóm (þeir verða að vera svartir, sem er frekar lítið úrval af hérna þessa stundina) og svo skutlaði kallinn mér heim á hjólinu ;). Úber flottur á því!!
Nú er það sko bara chill og snemma í háttinn... er að bíða eftir að sá flotti nenni að fara að elda þar sem hann svaf til hádegis...

... en við heyrumst!

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 15:45:10 / maría-beib

Vinnavinnavinna

Jájá, allt komið í gang. Marían er að fara að vinna á fimtudaginn. Byrja kl. 5.30 og verð að allan daginn til þess að læra bara vel á allt... þannig að ég er ekki búin fyrr en kl.15. Fyrsti dagurinn svoldið langur, en það verður örugglega bara fínt. Fyrir þá sem hafa áhuga þá er vinnan mín í morgunverðarhlaðborðinu á SAS hótelinu á móti Tívolíinu, bara næs!! Jamms, mín ætlar bara að gerast ekta bauni og hjóla í vinnuna, að sjálfsögðu, og hlakka ég bara til.
Fór á skemmtilegt djamm um helgina með Kidda, Söru og Anne-Marie, við fórum fyrst bara 4 saman á stelpudjamm og svo hittum við Heimi seinna um kvöldið. Ég rakst meira að segja á gamlan skólafélaga úr Flensborg, Haffa, sem býr hérna úti núna. En kvöldið var bara stórskemmtilegt og er allt hérna í Köben að verða skýrara og einfaldara. Kiddinn minn fær svo íbúðina sína á fimmtudaginn og við fórum í dag að skoða sófa! Við erum orðin svo fullorðin eitthvað!!
Er að fara í bíó í kvöld með "my other man" að sjá X-mennina. Hef smá samviskubit yfir því að skilja alltaf Heimi minn eftir en hann hefur engan áhuga á þessari mynd þannig að hann reddar sér bara sjálfur eins og hann er vanur ;).
Jæja, ég ætla að halda áfram að vera fullorðin í Köben, það fer bara bráðum að koma tími á bjór ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 16:19:45 / maría-beib

Kongens Köbenhavn....

.....OG ÉG!!


Bara gaman!! Ójá og jamm, veðrið ágætt... stundum sól og stundum demburigning beint niður! Íbúðin mjög fín og við Heimir erum að ná að átta okkur á áttum hérna, farin að þekkja strætóana og svona. Eina sem vantar eru peningar til að geta verslað!! Ó svo mikið fallegt sem Maríu litlu langar í, en hún duglega ég er samt búin að kaupa pinnahæla á ótrúlega lágu verði 120 dkr. og hann sæti Heimir minn keypti handa mér svarta hettupeysu. Eitt sem er alveg á hreinu, ég á eftir að eyða stórum fjárhæðum þegar ég fæ námslánin mín!!
Fórum í dag og kíktum í Christianiu, andrúmsloftið nú allt annað þar en áður... allt fullt af löggum og frekar mikill gangstera bragur á þessu.... jamm, mar saknaði bara chilli-hippafílingsins sem var þar.
Annars erum við nú búin að innbyrða heilmikinn bjór, sérstaklega Heimir ;), búin að hanga með Kidda sæta og bara hafa það gott. Ýmislegt sem þarf að gera, en mar er að detta inn í ligeglad mode hérna!

Bið að heilsa öllum heima, bauna-María

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 16:16:57 / maría-beib

Drottningardráp

Já hún litla sæta ég skellti sér í hetjubúninginn og drap DROTTNINGARBÝFLUGU!! Ég lenti nebbla í því að í gærkvöldi villtist hingað inn þessi líka hlussu drottning (á stærð við þumalputtann á mér) og suðaði hún eitthvað í glugganum. Ég panikkaði að sjálfsögðu smávegis og hringdi í Evu, gáfulegt... hún er stödd í Rvk og ég hér á Ak... en eins og Evu einni er lagið þá stappaði hún í mig stálinu og gaf mér góð ráð við drápið. Fyrst: opna svalahurðina upp á gátt... Tvö: setja sykur á blað á borðið og bíða eftir að hún setjist á hann.... ég á að sjálfsögðu engann sykur og þurfti því að fara yfir í íbúðina við hliðina til að fá lánaðann... Þrjú: setja glas yfir hana... Fjögur: taka blaðið með glasinu og býflugunni inní út og sleppa henni...
Áætlun sett í framkvæmd og ég, vopnuð hárspreyi og glerúða kem sykrinum fyrir á borðinu... bíð... bíð meira... en engin drottning kemur... hummm, hvað varð eiginlega af henni??? Ég rannsakaði eldhúsið hátt og lágt og viti menn, engin drottning þar í leynum. JESS!!! Ekkert smá kát og geggjað stolt af hetjutiburðum mínum, en samt þokkalega sátt yfir að þurfa ekki að beita þeim ;).
En hvað haldiði, þegar ég kem heim í dag þá er hlussan suðandi í glugganum mínum. Sjitt, hún leit sko út fyrir að vera helmingi stærri en kvöldið áður!! Ég var auðvitað búin að henda sykrinum og stari stjörf á hlussuna við tilburði sína í glugganum. Hárspreyið og glerúðinn eru enn við hendina og svo stendur glas hálffullt af vatni á borðinu. Þegar drottningin hlussaðist svo út í horn á glugganum greip ég tækifærið... ég teygði mig hægt og rólega í vatnsglasið og gusaði úr því á hana!! Á næsta sekúndubroti voru hárspreyið og glerúðinn komin í hendur mínar og úðaði ég eins og brjálæðingur á skaðvaldinn!! En þetta þótti mér ekki nóg því eftir nokkrar sekúndur af úðeríi fyllti ég glasið aftur af vatni og skvetti á hana AFTUR! Já, hlussan hafði sko ekki hreyft sig frá byrjun árásarinnar og því öruggt að ég gat titlað mig sigurvegara þessarar baráttu, en ekki var nema hálfur sigur unninn enn því ég átti eftir að hreinsa svæði stríðsglæpsins.... Hummm... eftir mikið puð tókst mér að ýta henni í kassa af frosinni pítsu. Mjög ánægð með sjálfa mig ætlaði ég að rölta með fenginn út í tunnu, haldandi að hlussan sé nú alveg pottþétt steindauð... en NEI!! Byrjar hún að suða á ný!!! Titrandi af hræðslu tekst mér að brjóta niður toppinn á kassanum og með kassann í handleggjalengd frá mér hljóp ég svo með hana í tunnuna!! Svo titraði ég af spennufalli svona 10 mín. eftir þessa miklu raun.
Hjúkk!!
Það tókst!!!
Ég vann!!!
Ég er svo þokkalega BEST!!!

Kveðja, the Killer of Queen Bee....

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 16:42:51 / maría-beib

íbúð í Köben

Ég er komin með íbúð í Köben!!!

Allir velkomnir í heimsókn, get ekki lofað gistingu, en endilega látið vita ef þið eigið leið um Köben í sumar...
Búin að panta flug út þann 24. maí og svo er ég að öllum líkindum búin að næla mér í eitt atvinnuviðtal! Jamm og já, það er sko allt komið á skrið.
Eina sem vantar er íbúð hérna fyrir norðan næsta vetur, vantar stúdíóíbúð á viðráðanlegu verði (30-50 þús ) og í göngufæri við skólann minn sem er í listagilinu.

Svo ætla ég að setja inn formlega eftirlýsingu á Kidda... Hávaxinn, einstaklega myndarlegur ljóshærður og grannur maður, 24 ára... ef þið hafið rekist á eða heyrt í þessum manni endilega látið mig vita hvar hann er að finna.


Annars ætlar allt liðið að koma norður um helgina. Það verður sko geggjað stuð!!!!

Takk í dag, María

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 20:24:48 / maría-beib

Þolinmæðin þrautir vinnur allar

Já lesendur góðir, ég þakka fyrir þolinmæðina og tryggðina við þessa síðu mína. Ég er nú loksins búin með blessaða prófið, það gekk bara vel og nú er sýningarundirbúningur á fullu, enda bara vika þar til hin frábæra lokasýning skólans míns verður. Ég er auðvitað líka komin með annan fótinn út til Kaupmannahafnar, en stefnan er að fara út í kringum 24. maí. Heimir er líklegast kominn með vinnu, enda mikill skortur á smiðum þarna úti, ég er með alla anga úti í vinnuleit líka og er á kafi í íbúðaleit. Svo er það auðvitað að athuga með íbúð fyrir næsta vetur hérna og að tæma þessa yndislegu íbúð sem ég er búin að fá að njóta hér í vetur.
Hummm, já svoldið mikið að gera... en yfir í betri fréttir, nú er ég að taka á mig sumarhaminn á ný. Já, loksins taka hinar langþráðu freknur mínar að birtast, enda er ég búin að kaupa mér sundkort og hleyp niðrí sund í hvert sinn sem sólin skín hérna á eyrinni, sem hefur nú verið nokkuð oft síðustu vikuna. Já, mín er meirað segja komin með örlítið bíkinífar!!

En hérna í lokin ætla ég að koma með örlitlar hugleiðingar sem sóttu á hug minn um daginn þegar ég fékk mér þennan skemmtilega göngutúr í rigningunni 1. maí. Ég var að labba eftir göngustíg einum og var þar allt krökkt af ormum. Já ég gat varla stigið niður fæti fyrir ormum sem voru að yfirgefa heimkynni sín í græna grasinu öðrum megin við göngustíginn til að halda yfir í nákvæmlega eins grænt gras hinum megin. Mjög margir þeirra létu lífið á þessari ferð sinni í leit að grænna grasi, flestir kramdir undir skósólum okkar mannanna. Þetta fékk mig til að hugsa um fólk sem er sífellt í leit að "grænna grasi". Fólk sem heldur alltaf að "eitthvað betra" bjóðist ef það heldur bara áfram... aðeins lengra. Þetta fólk eyðir oft öllu sínu lífi í að leita að einhverju örlítið betra heldur en það sem það hefur og deyr svo að lokum án þess að "komast nokkru sinni yfir" svo ég vitni til ormanna. Já fólk lifir oft í þeim misskilningi að leita þurfi langt að hamingjunni, að finna þurfi hana einhversstaðar annarsstaðar. Nei lesendur góðir, ég get sko sagt ykkur það að þeir sem byrja að leita hjá sjálfum sér komast oftar en ekki að því að allt sem maður þarfnast hefur maður nú þegar öðlast, málið er bara að vita hvenar á að stoppa.


Kveðja, HeimspekiMaría

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 14:38:21 / maría-beib

Gleymdi símanum f. norðan!!!

Alveg hræðilegt!! Símalaus!!! En jæja, heimasíminn er 5650191... og svo er síminn hennar Evu sá sami og minn nema endar á 67 í stað 84 og þar er ´hægt að fá frekari upplýsingar ef mikið liggur við...

bæjó


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9