Maríu-fréttir
I´m back!!
Tetta kallar á færslu
(t.e. á Íslandi). teir komu fram í tætti Jóns Ólafssonar sídasta
laugardagskvöld og spiludu lag eftir Spilverk tjódanna sem teir
settu í nyjan búning a´la Múgsefjun. Algjör snilld og get ég ekki
annad sagt en ad ég er ad rifna úr stollti yfir teim!! Endilega
örlítid ólíkum nótum... tannig er mál med vexti ad á sídunni
Lauslát, mjög skemmtilegt lag sem mig grunar tó ad sé um eina af
mínum allra kærustu vinkonum ... og tad sem meira er, mig grunar
nebbla ad ég sé ein af "diskódruslunum" sem adalpersóna textans
hlustar á ... Hummm... er tetta slæmt eda á ég bara ad vera stollt
af tví ad minnst sé óbeint á mig í lagi hljómsveitar sem er á barmi
heimsfrægdar ... eda er ég kannski bara ruglud ad halda í alvöru ad
ég sé svo merkileg ad minnst sé á mig (tótt óbeint sé) í lagi ...
skemmtilegt lag og ef tetta er tilvitnun til mín tá ætla ég bara ad
vera stollt af tví... en finnst samt eitt slæmt og tad er ad tessi
kærasta vinkona mín er bara svo engan veginn lauslát!! En hún veit
tad og líka langflestir adrir tannig ad tetta heldur bara áfram ad
vera fyndid ... Svo getur líka bara vel verid ad tetta lag sé bara
almennt samid um allar stelpur og ?á eru allar stelpur lauslátar og
diskódruslur... tví tad er vitad mál ad lauslátar stelpur hlusta
endilega hvetja fólk til ad hlusta á hid stórfenglega lag Álfar sem
er einnig ad finna á sídunni teirra. Flott lag sem hún Hrund
vinkona mín syngur yndisfagurri röddu bakraddir í :) Ég ætla bara
ad enda tetta á almennilegri auglysingu tví strákarnir eru ad spila
á tónleikum bædi á fim. kvöld (veit ekki alveg hvar) og á Beer Fest
á Gauknum á fös.kvöldi. Allir a? kíkja... ég verd tar med nyja
lenda í svaka veseni med ad fá tetta helv.... blogg birt og nenni
tessu veseni ekki lengur. Ég ætla tví ad lysa tessa bloggsidu dauda
og hvíli hún í fridi!!
Ég sakna...
Er komin norður, rembast við að finna heimildir fyrir ritgerðina
mína!! Vitiði um einhverjar góðar leitarsíður í að finna greinar um
Kem líklegast ekkert suður fyrr en bara á ammælinu mínu! BLÖNK!
Afmælið hans Kidda var FRÁBÆRT!! ójá! Fín, full, asnaleg og allt!!
Bæjó
Komin heim enn á ný...
verslunum, auglýsingar í sjónvörpum og fáránlega "ritskoðaðar"
myndir!! Var að horfa á species 2 eitt kvöldið og það er blurrað
yfir nakin brjóst, sett inn önnur orð í stað fuck og fleiri orða en
það er allt í lagi að sýna ógeðslega geimveru rífa sig út úr
maganum á konu með blóði og öskrum og öllu!!! Og það sem meira er,
ég var að horfa á There´s something about Mary í flugvélinni á
leiðinni heim og ALLT atriðið þar sem gaurinn er að runka sér fyrir
deitið var klippt út og á meðan settur texti sem á stóð eitthvað um
frændsystkynin hlupum á milli tækja í rigningunni sem skellti á.
Þar voru sko skemmtilegir rússíbanar og tæki og ég verð bara að
þegar ég sá Öskubusku í skrúðgöngunni að halda mætti að ég stæði
fyrir framan Brad Pitt! Já þar voru líka allmörg skemmtileg tæki að
fara í og margar skemmtilegar persónur að sjá. Sá dagur var í heild
geggjað að leika sér í sjónum ogöldunum. Eva og Hjalti byggðu
Perluna úr sandi og allir brunnu nema Helga frænka, amma og afi sem
verslað!!! Tvær búðir:Urban outfitters og Forever 21!! GEGGJAÐAR!!
Margir i-podar keyptir og fleira þeim tengt. En ég verð að
viðurkenna að ég hef aldrei verið eins eigingjörn í
verslunarleiðöngrum... fyrir mig eða Heimi.... hummmm... kaupi
fyrir mig!!! Sjitt, ég gjörsamlega tímdi ekki að kaupa ekki á mig!
ÞETTA VAR SVO ÓDÝRT!!! Þannig að ég eyddi gjörsamlega öllum mínum
pening í MIG og á ég ekki krónu núna!!Nebb, ekki einusinni fyrir
inneign, þannig að ef þið viljið heyra í mér áður en ég fer á
þriðjudaginn þá vinsamlegast hringið því ég vil heyra í ykkur
tip top. Margir morgnarnir fóru í það að flatmaga úti við sundlaug
og stikna! En svo var nú bara oftast rigning seinni partinn þannig
og þar sem Heimir er svona næstum heimilislaus um þessar mundir þá
vantar okkur ódýra gistingu helgina 8. og 9. sept. Eitthvað
notelegt lítið hótel eða herbergi væri fínt, bara að það sé ekki
Smá færsla
....Var að bóka flug aftur til köben þan 5. sept. í afmælið hans
Kidda... fékk það á tilboði en náði ekki tilboði til baka og ætla
að bíða aðeins og sjá hvort það lækki ekki aðeins aftur... semsagt:
....Vildi að ég hefði komist í afmælið hennar Jójó á síðasta fös.
....Hlakka til að sjá allar vinkonur mínar heima á klakanum á
....Á eftir að sakna strákanna minna: Heimis, Kidda, Þóris og Helga
....Er búin að eiga æðislegt sumar hérna úti og hlakka til að eiga
Loksins!
gott, brjálaður hiti og sól og gjörsamlega engin rigning í allt
sumar (nema þegar Eva kom). Allt gras er orðið gult á litinn og
hart eins og strá og fólk er varað við að nota of mikið vatn!! En
nú er rigningin komin, á að vísu bara að rigna í dag, en ég vona að
það svali mesta þorstanum hjá grasinu svo það verði þægilegt að
Við skötuhjúin skelltum okkur til Malmö síðustu helgi, vorum komin
um hádegi og fórum heim um kl. hálf þrjú um nóttina. Þetta var
alveg yndisleg ferð, Malmö er svakalega falleg og hugguleg og
minnti bara svoldið á Rvk að því leyti að hægt er að finna allt á
sama stað. Ég verslaði smá, gallabuxur og hlírabol en hann Heimir
minn virðist bara hvergi geta verslað neitt... eitthvað í sambandi
við að hann þarfnast einskis.... skil ekki alveg hvað það þýðir...
Er orðin svoldið þreytt á vinnunni, erfitt að vakna alltaf kl. 4.30
og vinna eins og brjálæðingur í 6 1/2 tíma, sérstaklega þegar mar
vinnur með fólki sem vinnur á hraða skjaldbökunnar!!! Úff! En nú
styttist í Orlando og get ég varla beðið!! Kem heim 16. ágúst um
kvöldið og svo verður haldið í fjölskylduferðina miklu þann 18.
Hlakka geggjað til þar sem þetta verður stórfjölskyldan, foreldrar
pabba, systkyni og börn, eða allt í allt 19 manns! Langar svo til
að taka kallinn minn með, er enn að reyna að sannfæra hann um að
koma... kannski tekst það ef ég dett inn á eitthvað svaka ódýrt
Jæja, ég vil bara óska öllum til hamingju með sólina sem virðist
ætla að skína eitthvað þessa dagana á klakanum, Strákarnir mínir,
Kiddi, Kenneth, Þórir og Jakob fá þá einhverja smá sælu þarna heima
og Eva örlitla von um að ná í smá lit fyrir Orlando þó hún eigi að
Sjáumst, Marían
svaka góða veðri!! Þessir dagarnir fara bara í það að bakast í
sólinni og hafa það gott ;). Hróarskelda var frábær!! Geggjað
veður, góðar hljómsveitir, síst á laugardagskvöldinu, og síðast en
ekki síst frábær félagsskapur. Við Eva versluðum eins og
brjálæðingar þessa 3 daga hennar í Köben og á ég nú fullt af nýju
og sætu dóti. Ég og strákarnir mínir fórum svo á Hjálmar tónleika í
Stínu í gærkvöldi og var það alveg frábært þrátt fyrir kæfandi
hitann inni á staðnum. Ég held að svona 90% fólks á tónleikunum
Jæja, læt þetta duga í bili, smjörþefurinn af því sem ég hef verið
að gera.... bæjó!
Sól, sól, skín á mig!!!
út á morgnana í pilsi og bol klukkan 5 og þarf ekki að fara í peysu
fyrr en á kvöldin! Það er svo heitt að þetta fer að minna á Spán...
og ég er búin að finna út besta hjólabúning EVER! PILS=GEGGJAÐ ;).
Á morgun er frídagurinn minn og þá þarf ég að fara að redda
skattkortinu og kennitölunni... hummm... vonandi reddast það... en
svona til að gera daginn aðeins skemmtilegri hef ég ákveðið að
kaupa mér fallegar leggings sokkabuxur í HogM og fallegan sumarkjól
í lítilli sætri búð sem selur líka ÆÐISLEGAR töskur! Lífið ekkert
nema ljúf í Kóngsins Köben og hef ég komist að því að
íslendingahátíðin 17. júní verður á ströndinni (sem ég var að hygge
Ég er búin að vera að vinna á Alberto K. sem er svaka fansí
veitingastaður á 20. hæðinni (efstu) á hótelinu þar sem V.I.P liðið
borðar... þá erum við að tala um fólk sem borgar allt upp í 24 þús.
danskar fyrir nóttina! Stórglæsilegt útsýni á þeim stað get ég sagt
Í gær var ég svo að hjálpa til við að fylla á minibarina á
herbergjunum... það var víst eitthvað um veikindi í þeirri
deildinni og þar sem ég var búin á Royal kl.12 og átti hvort er er
að mæta á staffa-fund kl.15 þá var það nú bara í stakasta lagi. Við
þetta tækifæri kíkti ég að sjáfsögðu í upprunalegu Arne Jakobsen
svítuna (nr. 606) og er hún svaka flott! Það var nú alveg ágætt að
fá að prufa eitthvað annað á hótelinu en ég er nú samt sem áður
fegin að vera á Royal, það er bara mjög fínt. Ég fór um daginn með
rúmservis til einhvers vip gaursins á hótelinu, veit að vísu ekkert
hver þetta var annað en Þórir sem fór um daginn til Colin Powells,
en gaurinn var að sjálfsögðu með personal assistant sem opnaði
fyrir mér og lét mig hafa tips á meðan mr.vip sat á rúminu í
náttfötunum og brosti breytt og bað mig um að skella bara bakkanum
Hef ekkert meira að segja í bili annað en það að lítið er um netráf
á mér þessa dagana þar sem ég er alltaf að njóta góða veðursins,
oftast í Kongens Have, og biðst ég velvirðingar á því en ég býst
Túrúlls munið að það er 0045 á undan númerinu mínu og Berglind ef
þú lest þetta þá verðuru að hringja þegar þú kemur!
Símanúmer
Var að vinna fyrsta daginn minn í dag. Leist bara vel á þetta,
tíminn líður hratt, skemmtilegt fólk og svona. Ég er samt alveg
geggjað þreytt í fótunum, enda búin að vera standandi meira og
minna í 9 og 1/2 tíma í lánsskóm sem voru númeri of stórir! En það
er einn stór plús við vinnuna... FULLT AF GÓÐUM MAT! En jamms, ég
vaknaði semsagt klukkan HÁLF FIMM í morgun og hjólaði í vinnuna,
vann eins og meiníak með örlítilli pásu og rölti svo um bæinn með
Heimi og hjólinu að leita mér að vinnuskóm (þeir verða að vera
svartir, sem er frekar lítið úrval af hérna þessa stundina) og svo
Nú er það sko bara chill og snemma í háttinn... er að bíða eftir að
sá flotti nenni að fara að elda þar sem hann svaf til hádegis...
... en við heyrumst!
Vinnavinnavinna
Byrja kl. 5.30 og verð að allan daginn til þess að læra bara vel á
allt... þannig að ég er ekki búin fyrr en kl.15. Fyrsti dagurinn
svoldið langur, en það verður örugglega bara fínt. Fyrir þá sem
hafa áhuga þá er vinnan mín í morgunverðarhlaðborðinu á SAS
hótelinu á móti Tívolíinu, bara næs!! Jamms, mín ætlar bara að
gerast ekta bauni og hjóla í vinnuna, að sjálfsögðu, og hlakka ég
Fór á skemmtilegt djamm um helgina með Kidda, Söru og Anne-Marie,
við fórum fyrst bara 4 saman á stelpudjamm og svo hittum við Heimi
seinna um kvöldið. Ég rakst meira að segja á gamlan skólafélaga úr
Flensborg, Haffa, sem býr hérna úti núna. En kvöldið var bara
stórskemmtilegt og er allt hérna í Köben að verða skýrara og
einfaldara. Kiddinn minn fær svo íbúðina sína á fimmtudaginn og við
fórum í dag að skoða sófa! Við erum orðin svo fullorðin eitthvað!!
Er að fara í bíó í kvöld með "my other man" að sjá X-mennina. Hef
smá samviskubit yfir því að skilja alltaf Heimi minn eftir en hann
hefur engan áhuga á þessari mynd þannig að hann reddar sér bara
Jæja, ég ætla að halda áfram að vera fullorðin í Köben, það fer
bara bráðum að koma tími á bjór ;)
Kongens Köbenhavn....
Bara gaman!! Ójá og jamm, veðrið ágætt... stundum sól og stundum
demburigning beint niður! Íbúðin mjög fín og við Heimir erum að ná
að átta okkur á áttum hérna, farin að þekkja strætóana og svona.
Eina sem vantar eru peningar til að geta verslað!! Ó svo mikið
fallegt sem Maríu litlu langar í, en hún duglega ég er samt búin að
kaupa pinnahæla á ótrúlega lágu verði 120 dkr. og hann sæti Heimir
minn keypti handa mér svarta hettupeysu. Eitt sem er alveg á
hreinu, ég á eftir að eyða stórum fjárhæðum þegar ég fæ námslánin
Fórum í dag og kíktum í Christianiu, andrúmsloftið nú allt annað
þar en áður... allt fullt af löggum og frekar mikill gangstera
bragur á þessu.... jamm, mar saknaði bara chilli-hippafílingsins
Annars erum við nú búin að innbyrða heilmikinn bjór, sérstaklega
Heimir ;), búin að hanga með Kidda sæta og bara hafa það gott.
Ýmislegt sem þarf að gera, en mar er að detta inn í ligeglad mode
Bið að heilsa öllum heima, bauna-María
Drottningardráp
DROTTNINGARBÝFLUGU!! Ég lenti nebbla í því að í gærkvöldi villtist
hingað inn þessi líka hlussu drottning (á stærð við þumalputtann á
mér) og suðaði hún eitthvað í glugganum. Ég panikkaði að sjálfsögðu
smávegis og hringdi í Evu, gáfulegt... hún er stödd í Rvk og ég hér
á Ak... en eins og Evu einni er lagið þá stappaði hún í mig stálinu
og gaf mér góð ráð við drápið. Fyrst: opna svalahurðina upp á
gátt... Tvö: setja sykur á blað á borðið og bíða eftir að hún
setjist á hann.... ég á að sjálfsögðu engann sykur og þurfti því að
fara yfir í íbúðina við hliðina til að fá lánaðann... Þrjú: setja
glas yfir hana... Fjögur: taka blaðið með glasinu og býflugunni
Áætlun sett í framkvæmd og ég, vopnuð hárspreyi og glerúða kem
sykrinum fyrir á borðinu... bíð... bíð meira... en engin drottning
kemur... hummm, hvað varð eiginlega af henni??? Ég rannsakaði
eldhúsið hátt og lágt og viti menn, engin drottning þar í leynum.
JESS!!! Ekkert smá kát og geggjað stolt af hetjutiburðum mínum, en
En hvað haldiði, þegar ég kem heim í dag þá er hlussan suðandi í
glugganum mínum. Sjitt, hún leit sko út fyrir að vera helmingi
stærri en kvöldið áður!! Ég var auðvitað búin að henda sykrinum og
stari stjörf á hlussuna við tilburði sína í glugganum. Hárspreyið
og glerúðinn eru enn við hendina og svo stendur glas hálffullt af
vatni á borðinu. Þegar drottningin hlussaðist svo út í horn á
glugganum greip ég tækifærið... ég teygði mig hægt og rólega í
vatnsglasið og gusaði úr því á hana!! Á næsta sekúndubroti voru
hárspreyið og glerúðinn komin í hendur mínar og úðaði ég eins og
brjálæðingur á skaðvaldinn!! En þetta þótti mér ekki nóg því eftir
nokkrar sekúndur af úðeríi fyllti ég glasið aftur af vatni og
skvetti á hana AFTUR! Já, hlussan hafði sko ekki hreyft sig frá
byrjun árásarinnar og því öruggt að ég gat titlað mig sigurvegara
þessarar baráttu, en ekki var nema hálfur sigur unninn enn því ég
átti eftir að hreinsa svæði stríðsglæpsins.... Hummm... eftir mikið
puð tókst mér að ýta henni í kassa af frosinni pítsu. Mjög ánægð
með sjálfa mig ætlaði ég að rölta með fenginn út í tunnu, haldandi
að hlussan sé nú alveg pottþétt steindauð... en NEI!! Byrjar hún að
suða á ný!!! Titrandi af hræðslu tekst mér að brjóta niður toppinn
á kassanum og með kassann í handleggjalengd frá mér hljóp ég svo
með hana í tunnuna!! Svo titraði ég af spennufalli svona 10 mín.
Kveðja, the Killer of Queen Bee....
íbúð í Köben
Allir velkomnir í heimsókn, get ekki lofað gistingu, en endilega
Búin að panta flug út þann 24. maí og svo er ég að öllum líkindum
búin að næla mér í eitt atvinnuviðtal! Jamm og já, það er sko allt
Eina sem vantar er íbúð hérna fyrir norðan næsta vetur, vantar
stúdíóíbúð á viðráðanlegu verði (30-50 þús ) og í göngufæri við
Svo ætla ég að setja inn formlega eftirlýsingu á Kidda... Hávaxinn,
einstaklega myndarlegur ljóshærður og grannur maður, 24 ára... ef
þið hafið rekist á eða heyrt í þessum manni endilega látið mig vita
Annars ætlar allt liðið að koma norður um helgina. Það verður sko
Takk í dag, María
Þolinmæðin þrautir vinnur allar
þessa síðu mína. Ég er nú loksins búin með blessaða prófið, það
gekk bara vel og nú er sýningarundirbúningur á fullu, enda bara
vika þar til hin frábæra lokasýning skólans míns verður. Ég er
auðvitað líka komin með annan fótinn út til Kaupmannahafnar, en
stefnan er að fara út í kringum 24. maí. Heimir er líklegast kominn
með vinnu, enda mikill skortur á smiðum þarna úti, ég er með alla
anga úti í vinnuleit líka og er á kafi í íbúðaleit. Svo er það
auðvitað að athuga með íbúð fyrir næsta vetur hérna og að tæma
þessa yndislegu íbúð sem ég er búin að fá að njóta hér í vetur.
Hummm, já svoldið mikið að gera... en yfir í betri fréttir, nú er
ég að taka á mig sumarhaminn á ný. Já, loksins taka hinar langþráðu
freknur mínar að birtast, enda er ég búin að kaupa mér sundkort og
hleyp niðrí sund í hvert sinn sem sólin skín hérna á eyrinni, sem
hefur nú verið nokkuð oft síðustu vikuna. Já, mín er meirað segja
En hérna í lokin ætla ég að koma með örlitlar hugleiðingar sem
sóttu á hug minn um daginn þegar ég fékk mér þennan skemmtilega
göngutúr í rigningunni 1. maí. Ég var að labba eftir göngustíg
einum og var þar allt krökkt af ormum. Já ég gat varla stigið niður
fæti fyrir ormum sem voru að yfirgefa heimkynni sín í græna grasinu
öðrum megin við göngustíginn til að halda yfir í nákvæmlega eins
grænt gras hinum megin. Mjög margir þeirra létu lífið á þessari
ferð sinni í leit að grænna grasi, flestir kramdir undir skósólum
okkar mannanna. Þetta fékk mig til að hugsa um fólk sem er sífellt
í leit að "grænna grasi". Fólk sem heldur alltaf að "eitthvað
betra" bjóðist ef það heldur bara áfram... aðeins lengra. Þetta
fólk eyðir oft öllu sínu lífi í að leita að einhverju örlítið betra
heldur en það sem það hefur og deyr svo að lokum án þess að "komast
nokkru sinni yfir" svo ég vitni til ormanna. Já fólk lifir oft í
þeim misskilningi að leita þurfi langt að hamingjunni, að finna
þurfi hana einhversstaðar annarsstaðar. Nei lesendur góðir, ég get
sko sagt ykkur það að þeir sem byrja að leita hjá sjálfum sér
komast oftar en ekki að því að allt sem maður þarfnast hefur maður
Kveðja, HeimspekiMaría
Gleymdi símanum f. norðan!!!
og svo er síminn hennar Evu sá sami og minn nema endar á 67 í stað
84 og þar er ´hægt að fá frekari upplýsingar ef mikið liggur